Dómsvald

Nils Gíslason
  • Heimilisfang: Skógarbraut 1107
  • Skráð: 04.05.2011 21:32

Varðandi dómsvald, hópur C.

 

Tillaga nefndar að D2 - Sjálfstæði dómstóla:

Sjálfstæði dómstóla skal tryggt með lögum. Dómstólar mega hvorki sinna störfum sem samkvæmt venju eða eðli sínu heyra undir aðra valdþætti ríkisins né má fela þeim slíkt með lögum.

Umræða:

 

  1. Er ekki við hæfi að stjórnarskráin setji héraðsdómstiginu ákveðinn ramma rétt eins og hæstaréttarstiginu?
  2. Með lögum má undanskilja lögsögu hans (hæstaréttar) mál sem sæta úrlausn sérdómstóla á einu dómstigi. Hver er tilgangurinn með þessu, sparnaður? Eigum við ekki öll að njóta lögsögu Hæstaréttar, er það ekki jafnræði og mannréttindi?

 

 

Bestu kveðjur,

Nils.

 

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.