Gegnsætt eignarhald

Sigurður Jónas Eggertsson
  • Heimilisfang: Hagamel 32
  • Skráð: 05.05.2011 00:56

Eignarhald fyrirtækja hefur oft verið mjög óljóst og hefur það valdið ýmsum vandamálum.
Með löngum hlekkjum af fyrirtækjum er hægt að fela eignarhald og mikil vinna er að komast að því hverjir raunverulegir eigendur eru.

Þetta er algjör óþarfi og fáránlegt að geta ekki komist að því við hvern maður á í raun í viðskiptum við.

Ég sé fyrir mér eftirfarandi grein í stjórnarskránni.

„Tryggja skal með lögum að eignarhald fyrirtækja sé gegnsætt og aðgengilegt almenningi.“

Hugmynd að útfærslu á þessu væri t.d.

  • Í einföldustu mynd þá mættu eingöngu einstaklingar eiga fyrirtæki.
  • Lagskipt kerfi t.d. eignarhaldsfélög og fyrirtæki.

Eingöngu einstaklingar mættu eiga eignarhaldsfélög, eignarhaldsfélög mættu eingöngu eiga í fyrirtækjum, ekki öðrum eignarhaldsfélögum.

Fyrirtæki mættu eingöngu vera í eigu einstaklinga eða eignarhaldsfélaga.

 

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.