Aðskilnaður ríkis og kirkju

SARK c/oFriðrik Þór Guðmundsson
  • Hagsmunaaðilar: AARK, Ásatrúarfélagið, SGI, Fríkirkjan í Rvík, SARK, Siðmennt, Vantrú
  • Skráð: 11.05.2011 11:26

Sælir, stjórnlagaráðsfulltrúar.

Okkur langar til að vekja athygli ykkar á neðangreindri auglýsingu sem birtist í Fréttablaði dagsins [11. maí 2011]. Þar skora nokkur samtök og sóknarprestur á Stjórnlagaráð að gefa þjóðinni færi á að kjósa sérstaklega um þjóðkirkjuákvæði stjórnarskrárinnar, þ.e. um aðskilnað ríkis og kirkju. Undir áskorunina rita:

Aðgerðir til aðskilnaðar ríkis og kirkju (AARK).
Ásatrúarfélagið.
Búddistasamtökin SGI á Íslandi.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur og forstöðumaður Fríkirkjunnar við Tjörnina.
Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju (SARK).
Siðmennt - félag siðrænna húmanista á Íslandi.
Vantrú.

Frekari upplýsingar veita Friðrik Þór Guðmundsson (sendandi) og Sigurður Hólm Gunnarsson.

Efni auglýsingarinnar (2x18 á fréttasíðu) í Fréttablaðinu í dag [11. maí 2011]:

Aðskiljum ríki og kirkju
Hvatning til Stjórnlagaráðs

Við undirrituð hvetjum Stjórnlagaráð að bera fram sérstaka tillögu um afnám 62. greinar stjórnarskrár Íslands og afnema þar með ákvæði um sérstaka vernd Þjóðkirkjunnar. Við teljum að stjórnarskrá Íslands eigi að tryggja jafnrétti og fullt trúfrelsi einstaklinga óháð trúar- eða lífsskoðunum þeirra.

Mikill meirihluti hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju.
Frá árinu 1993 hafa skoðanakannanir ítrekað sýnt að mikill meirihluti Íslendinga er hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju. Samkvæmt könnun Capacent frá 2010 kemur í ljós að „Ríflega 73% þeirra sem taka afstöðu annaðhvort með eða á móti aðskilnaði ríkis og kirkju segjast nú hlynnt honum en tæplega 27% eru andvíg aðskilnaði."* Er þetta sambærileg niðurstaða og fékkst 2009 en þá kom enn fremur fram að 70% þeirra sem tilheyra Þjóðkirkjunni eru hlynntir aðskilnaði ríkis og kirkju.

Í stuttu máli er mikill meirihluti allra Íslendinga, óháð trúarafstöðu, lífsskoðun eða trúfélagsskráningu hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju.

Leyfum þjóðinni að kjósa
Þó að mikill meirihluti Íslendinga vilji aðskilja ríki og kirkju telja undirrituð að vænlegast sé að Stjórnlagaráð leggi fram sérstaka tillögu um afnám 62. greinar stjórnarskrárinnar sem verður síðan lögð undir dóm kjósenda í þjóðaratkvæði samfara kosningu um nýja stjórnarskrá. Þannig getur almenningur kosið sérstaklega um aðskilnað ríkis og kirkju óháð öðrum tillögum Stjórnlagaráðs.

Undirrituð:
Aðgerðir til aðskilnaðar ríkis og kirkju (AARK).
Ásatrúarfélagið.
Búddistasamtökin SGI á Íslandi.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur og forstöðumaður
Fríkirkjunnar við Tjörnina.
Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju (SARK).
Siðmennt - félag siðrænna húmanista á Íslandi.
Vantrú.

Heimild:
*Capacent http://www.capacent.is/frettir-og-frodleikur/thjodarpulsinn/thjodarpulsinn/
2010/10/06/Malefni-kirkjunnar/

SARK - Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju greiddu fyrir þessa auglýsingu [í Fréttablaðinu 11. maí 2011].

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.