Framkvæmdavaldið

Pétur Jósefsson
  • Heimilisfang: Þorláksgeisli 6
  • Skráð: 14.05.2011 15:46

Ég vil leggja til að oddviti framkvæmdarvaldsins, hvort sem hann verður kallaður forseti eða forsætisráðherra, verði kjörinn af þjóðinni – EKKI Alþingi. T.d. til 4 ára og þá verði varaforseti kjörinn með sama hætti. Oddviti framkvæmdarvaldsins velur ráðherra, en Alþingi þarf að samþykkja val hans, hann skipar einnig dómara en að fengnu samþykki Alþingis og undangenginni umsögn hæfisnefndar svo og forstöðumenn helstu ríkisstofnana. Oddviti situr ekki á Alþingi, heldur ekki ráðherrar og séu ráðherrar valdir úr hópi þingmanna þá skal Alþingi kalla inn varamenn þeirra. Öll frumvörp til laga skulu flutt af þingmönnum en oddvita svo og ráðherrum er heimilt að ávarpa Alþingi að fengnu samþykki embættis þingforseta.
Alþingi skal rækja eftirlitshlutverk sitt m.a. með opnum þingnefndafundum og skal eftirlitshlutverki Alþingis ekki síður gert hátt undir höfði en lagasetning.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.