Um dýravelferð

Sif Traustadóttir
  • Heimilisfang: Rauðagerði 63
  • Hagsmunaaðilar: Samtökin Velbú
  • Skráð: 31.05.2011 16:43

Samtökin Velbú leggja til að ákvæði um dýravelferð verði fest í stjórnarskrá Íslands. Við teljum mikilvægt að í stjórnarskrá sé viðurkenning á því að dýr séu skyni gæddar verur sem geta fundið til sársauka og vanlíðunar og að vegna þessa beri að huga að velferð þeirra í allri lagasetningu og ráðstöfunum sem varða dýr. Þetta er sérstaklega mikilvægt að hafa í huga þegar um er að ræða dýr í vörslu manna, en einnig varðandi umgengni manna við villt dýr. Sambærilegt orðalag er nú komið í dýravelferðarlög í nágrannalöndum okkar, í Rómarsáttmála Evrópusambandsins og jafnvel í stjórnarskrár sumra landa. Við teljum að þróun á Vesturlöndum sé nú í þá átt að viðurkenna að dýr hafi rétt á að vera meðhöndluð á mannúðlegan hátt og því sé rétt að setja ákvæði um dýravelferð í nýja stjórnarskrá.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.