Umsögn um umhverfisverndarákvæði í mannréttindakafla

Guðmundur Hörður Guðmundsson
  • Heimilisfang: Lynghaga 6, 107 Reykjavík
  • Hagsmunaaðilar: Landvernd
  • Skráð: 02.06.2011 22:18

Fundur stjórnar Landverndar 1.6.2011 samþykkti eftirfarandi ályktun um stjórnarskrárákvæði um umhverfismál.

Stjórn Landverndar fagnar þeim tillögum sem Stjórnlagaráð hefur birt í áfangaskjali um mannréttindakafla. Stjórnin fagnar sérstaklega tillögu um að stjórnvöldum beri að upplýsa almenning um ástand umhverfis og áhrif framkvæmda á það. Með slíku ákvæði yrði skýrt kveðið á um frumkvæðisskyldu stjórnvalda.

Stjórnin gerir eftirfarandi athugasemdir við áfangaskjalið:

1. Í tillögunum er ekki fjallað um meginreglur umhverfisréttarins, t.d. mengunarbótarregluna og varúðarregluna. Stjórn Landverndar leggur til að úr því verði bætt.

2. Stjórn Landverndar hvetur Stjórnlagaráð til að leggja fram tillögu um að hálendið verði gert að griðasvæði. Í þessum efnum vísar stjórn Landverndar meðal annars til ályktunar aðalfundar Landverndar 2006. Sjá: http://www.landvernd.is/myndir/Halendi.pdf

Stjórn Landverndar

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.