Þegar þingmenn skipta um flokk

Sveinn Þorsteinsson
  • Skráð: 03.06.2011 08:59

Sæl, ég er verulega ósáttur við það fyrirkomulag, að menn eru kosnir á þing fyrir ákveðinn flokk og flokksfélagar viðkomandi manna berjast við að koma viðkomandi á þing til að koma á framfæri samþykktum viðkomandi flokks á Alþingi Íslendinga. Þá finnst mér að viðkomandi hafi ekki lengur umboð til að vera þingmaður og á að víkja úr sæti fyrir varamanni. Nýjasta dæmið er þegar Ásmundur Einar Daðason er allt í einu orðinn framsóknarmaður.
Það er mín skoðun að þegar þingmaður á ekki lengur samleið með þeim flokki sem hann er kosinn til og getur ekki sætt sig við flokkssamþykktir sinna félaga að þá á hann að víkja, en ekki að fara að vera boðberi annars flokks.

Hefur þetta verið rætt í Stjórnlagaráði? Gaman væri að fá svar við þessu.

Bestu kveðjur,

Sveinn Þorsteinsson

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.