Fyrirfram áhyggjur

Heiðrún Sveinsdóttir
  • Heimilisfang: Hrísrimi 6
  • Skráð: 06.06.2011 13:19

Það er eitt sem ég er farin að óttast, þegar að því kemur að greiða atkvæði um nýju stjórnarskrána þarf trúlega að greiða atkvæði um allt plaggið – sem heild. Þar er komið margt gott sem ég vil samþykkja, en svo kemur einhver ein grein sem ég get bara ekki samþykkt.

Það væri óskandi að hægt yrði að samþykkja eða synja hverri grein fyrir sig, jafnvel áður en Alþingi fjallar um málið, þá vita þeir hvaða greinum þarf að taka betur á, og hvaða greinar þarf ekki að eyða tíma í.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.