Hlutverk forseta

Heiðrún Sveinsdóttir
  • Heimilisfang: Hrísrimi 6
  • Skráð: 10.06.2011 14:09
Góðan daginn.

Það er alveg rétt að þið eruð frábær og að vinna stórkostlegt verk.

Og svo að alvörunni :)

Í umræðum um tillögur B-nefndar kom ýmislegt fram en samt finnst mér vanta nokkra punkta.
Embættisveitingar, af hálfu þings eða ráðherra, bjóða alltaf upp á bitlinga. Ég legg til að ákveðin embætti falli beint undir forseta og hann/hún skipi í þau, að fenginni umsögn ráðgjafarnefndar á hverju sviði.
Þeir aðilar munu því ekki hafa tengsl inn á þing eða til ákveðins flokks, þurfa ekki að „þóknast“ þeim.

  • Allir dómarar við alla dómstóla
  • Umboðsmaður Alþingis, skuldara, barna og yfirleitt allir umboðsmenn sem ætlað er að koma fram fyrir hönd landsmanna og „vernda“ þá gegn ósanngirni og yfirgangi
  • Ríkisendurskoðandi - Ríkissáttasemjari
  • Ríkislögmaður - Ríkissaksóknari
  • Seðlabankastjóri
  • Landlæknir

Bara hugmynd,
Kveðja,
Heiðrún.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.