Þegar þingmenn verða ósammála flokki sínum

Svanbjörg Helga Haraldsdóttir
  • Heimilisfang: Kaplaskjólsvegi 51
  • Skráð: 13.06.2011 22:00

Góðan dag.

Athugasemd mín er um hvernig eðlilegast væri að gæta réttlætis fyrir kjósendur þegar þingmenn verða ósammála flokknum sínum. Allnokkrir þingmenn hafa sagt sig úr sínum flokki á núverandi kjörtímabili. Þetta tel ég ótækt gagnvart kjósendum. Þingmaður á ekki persónulega sæti, hann var ekki kosinn sem persóna heldur var flokkurinn kosinn og þingmaðurinn komst inn á þing sem hluti flokksins. Það er ekkert réttlæti í að atkvæði kjósenda endi gegn þeim flokki sem þeir kusu.

Ef maður/kona býður sig fram í alþingiskosningum á vegum flokks og verður þingmaður, ber þingmanninum að segja af sér þingmennsku ef hann telur samvisku sinnar vegna að hann geti ekki unnið með sínum flokki á Alþingi. Varaþingmaður komi þá inn í hans stað.

Þingmaður=maður eða kona sem á sæti á Alþingi Íslendinga.

Þetta þyrfti að orða betur, en skýringar fyrir ofan ættu að segja það sem þarf.

Takk fyrir.

Svanbjörg Helga Haraldsdóttir

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.