Ákæruvald sjálfstæði „rannsóknardómarar“

Asgeir Sigurvaldason
  • Heimilisfang: Laugavegur 52
  • Skráð: 14.06.2011 21:45

 

Hvernig á stjórnarskráin að tryggja að „við fólkið“ getum rannsakað og ákært „spillingu“ svosem eins og einkavinavæðingu? Nefni Kögun og einkavæðingu ýmissa opinberra (útgerðar) fyrirtækja, sparisjóða, samvinnufélaga (eins og með því að lána „erfingjum“ stjórnarmanna til að stofna fyrirtæki).

Þá vil ég aðhald þannig að almenningur geti ákært þegar yfirvaldið fer gegn almannahag. Þá er úrelt að skattmann njóti öfugrar sönnunarbyrði – mér finnst það arfur frá konungdæminu.

Einnig vil ég sjá að auðkýfingar geti ekki þaggað niður málfrelsið – hægt er að tryggja það með því að skattpeningar borgi málsvarnir svipað og í prófmálum. Það þarf að verja þá sem „tala og tjá sig“.

Hvar eru varnir fyrir uppljóstrara?

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.