Bann við hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi

Lúðvíg Lárusson
  • Heimilisfang: Furugerði 6, 108 Reykjavík
  • Skráð: 19.06.2011 22:24

Setja afgerandi og skýlaus fyrirmæli um bann við hryðjuverkum, skipulagðri glæpastarfsemi hvers lags, mansali og nauðungarvinnu sem ólöglegri. Sömuleiðis er brýnt að veita heimildir til að beita viðbrögðum sem eru engu síður áhrifarík úrræði ástandinu til upprætingar.

Er hér um að ræða eina þá grófustu meinsemd sem þjóðfélag getur átt í og ef það er ekki í stakk búið til að brjóta slíkt ástand á bak aftur strax jafngildir það að stjórnvöld líða að borgurunum sé misþyrmt,  haldið í gíslingu og hnepptir í þrældóm t.d. fjárkúgunar, vændi eða vinnu án launa. Þetta er að finna allt í kringum okkur í dag og ekki aðeins í lýsingum á  ránsferðum víkinga forðum. Forðast ber að kæfa úrlausnir í lagaflækjum og heldur heimila sérlög í þessum tilgangi sem kemur saklausum þolendum til góða.


Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.