Kosningar um þjóðkirkju

Valgarður Guðjónsson
  • Heimilisfang: Kaldasel 13
  • Skráð: 22.06.2011 23:40

Kosningar um þjóðkirkju

 

Burtséð frá því að mér finnst afleit hugmynd að kjósa um þjóðkirkjuákvæðið þá velti ég fyrir mér hvort yfirleitt sé mögulegt að framkvæma þetta samhliða kosningu um stjórnarskrána.

 

Hvernig á kjósandi að geta ákveðið hvort hann samþykkir nýja stjórnarskrá eða ekki ef hann veit ekki hvernig svona mikilvægt atriði verður?

 

Verður ekki að fara með þetta atriði eins og í hefðbundnum fundarsköpum, þ.e.a.s. kjósa fyrst um einstaka liði (breytingartillögur)?

 

Og hvað ef samþykkt er að fella burt ákvæðið um þjóðkirkju en ný stjórnarskrá er felld? Verður þá ákvæðið um þjóðkirkju fellt úr þeirra gömlu?

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.