Heiðarleiki

Magnús Jón
  • Heimilisfang: Sjávargrund 5a
  • Skráð: 24.06.2011 12:28

Heiðarleiki

Ábending vegna kosningu alþingismanna, mér finnst það algjört virðingarleysi við kjósendur þegar kjörnir fulltrúar skipta um flokk á kjörtímabili, alþingismaður sem telur sig ekki geta starfað fyrir þann flokk sem hann var kosinn fyrir á þing, á að segja af sér þingmennsku og varamaður að koma í hans stað inn á Alþingi.

Ég á tvo syni sem kusu ákveðna stjórnmálahreyfingu, það fólk skipti um hreyfingu og þeim finnst þeir hafa verið sviknir og segjast ekki ætla að taka þátt í svona skrípaleik aftur sem alþingiskosningar eru.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.