Dómarar dæma eftir réttarheimildum

Björn Einarsson læknir LSH og heimspekinemi
  • Heimilisfang: Hlíðarbyggð 2, 210 Garðabær
  • Skráð: 01.07.2011 14:24

Tillaga: Dómarar dæma eingöngu eftir lögum eða öðrum réttarheimildum.

Réttlæting: Þegar lög ná ekki til þess atviks sem dæmt skal um, dæmir dómari eftir öðrum réttarheimildum, þ.e. réttarvenju, fordæmi, lögjöfnun, meginreglu laga, eðli máls o.fl. Sjá kafla II Réttarheimild, í bók Próf.em. Sigurðar Líndal, UM LÖG OG LÖGFRÆÐI, Grundvöllur laga - réttarheimildir. Auðvitað er mikilvægt að dómarar séu sjálfstæðir í störfum sínum, en það er villandi að dómarar dæmi eingöngu eftir lögum, það vita allir laganemar.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.