Stjórnlagaþing á eitt að geta breytt stjórnarskránni í framtíðinni.

Björn Einarsson læknir LSH og heimspekinemi
  • Heimilisfang: Hlíðarbyggð 2, 210 Garðabær
  • Skráð: 01.07.2011 14:26

Tillaga: Stjórnlagaþing á eitt að geta breytt stjórnarskránni í framtíðinni, ekki Alþingi. Til kosninga stjórnlagaþings á að boða með meirihluta Alþingis eða með undirskriftasöfnun 1/3 hluta kosningabærra manna.

Réttlæting: Stjórnmálamenn eiga ekki að setja sér „leikreglurnar“ sjálfir. Stjórnlagaþingi var ætlað að gera uppkast að nýrri stjórnarskrá. Við eigum að halda áfram á þeirri braut og setja breytingar á stjórnarskránni algjörlega í hendur á stjórnlagaþingi. Alþingi hefur aldrei getað komið sér saman um raunhæfar breytingar á núverandi stjórnarskrá í þau 60 ár sem hún hefur verið í gildi, nema vegna kosningakerfis og mannréttindakaflann 1995. Núverandi tillögur Stjórnlagaráðs um að það sé í höndum Alþingis að gera breytingar á stjórnarskránni eru afturför frá því sem Alþingi þó sjálft lagði af stað með þegar ákvarðað var að boða til kosninga stjórnlagaþings, þó það hafi aðeins átt að vera ráðgefandi.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.