Tillögur að bættum kafla um dómsvald

Svavar Kjarrval Lúthersson
  • Heimilisfang: Kríuás 19
  • Skráð: 04.07.2011 10:36

Tillögur að bættum kafla um dómsvald

Í anda samstarfs óska ég eftir því að gera eftirfarandi tillögur í tengslum við kaflann um dómsvald eins og hann var eftir 15. ráðsfund:

2. gr.
Hér vil ég bæta við ákvæði sem kveður á um að dómurum sé óheimilt að gegna öðrum störfum á meðan þeir gegna embættinu, sérstaklega til að gæta hlutleysis eins og unnt er. Sömuleiðis sé óheimilt að skipa dómara í nefndir eða störf á vegum Alþingis eða stjórnvalda. Ástæðan er aðallega sú að séu afurð þeirra notuð verða þeir um leið vanhæfir til að fjalla um málið ef ágreiningur er um það síðar meir.

3. gr.
Legg til eftirfarandi viðbót við 2. efnisgrein.
„Samrýmist lög ekki stjórnarskrá falla þau úr gildi.“

7. gr.
Þarf öll þingnefndin að vera sammála eða eingöngu meirihluta hennar?

Viðbætur:
„Birta skal dóma opinberlega og á aðgengilegan hátt. Birting þeirra skal ákveðin með lögum.“

Undirritað,
Svavar Kjarrval Lúthersson

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.