Tillögur að bættum kafla um ráðherra og ríkisstjórn

Svavar Kjarrval Lúthersson
  • Heimilisfang: Kríuás 19, Hafnarfjörður
  • Skráð: 04.07.2011 10:43

Tillögur að bættum kafla um ráðherra og ríkisstjórn

Í anda samstarfs óska ég eftir því að gera eftirfarandi tillögur í tengslum við kaflann um ráðherra og ríkisstjórn eins og hann var eftir 15. ráðsfund:

1. gr.
Hvað er stjórnarstefna og af hverju bera ráðherrar ekki ábyrgð á málefnum ráðuneyta sem falla utan marka hennar?

4. gr.
Forsætisráðherra gæti alltaf búið til nýtt ráðherraembætti eða endurskilgreint ráðherraembættin þannig að það myndi ekki tæknilega teljast sama ráðherraembætti. Að mínu mati væri betra að takmarka tímann við setu sem ráðherra óháð embætti, annars verður til samkomulag um að skiptast á sætum reglulega.

10. gr.
Mæli með því að málið sé sótt fyrir héraðsdómi fyrst (þ.e. almennum dómstólum). Skv. alþjóðlegum skuldbindingum Íslands skal alltaf vera réttur manna að áfrýja málum til æðra dómstigs og að mínu mati er mikilvægt að vernda mannréttindi ráðherra. Einnig gætu verið mistök í málflutningi eða annað sem gæti krafist áfrýjunar eða ákvörðunar æðra dómstigs.

Einnig mæli ég með því að lágmarksfyrning sé gefin upp svo ekki sé hægt að lækka hana svo mikið að brot fyrnist á svo skömmum tíma að ekki sé hægt að rannsaka þau. Þá mæli ég með því að sá tími sé að lágmarki 5 ár með möguleika á að rjúfa fyrningu um allt að 1 ár á meðan könnun eftirlits- og stjórnskipunarnefndar á sér stað.

Undirritað,
Svavar Kjarrval Lúthersson

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.