Takmarka þarf auðvaldið

Methúsalem Þórisson
  • Heimilisfang: Hringbraut 37, R
  • Hagsmunaaðilar: Húmanistaflokkurinn
  • Skráð: 04.07.2011 23:36

Ég vil taka undir tillögur sem Lýðræðisfélagið Aldan og aðrir hafa lagt fram m.a. eftirfarandi:

5. kafli - STÖRF ALÞINGIS

10. gr. Opnir fundir

„Fundir Alþingis eru haldnir í heyranda hljóði.

Þingnefnd getur ákveðið að fundur hennar sé opinn almenningi.‟

Athugasemd: Þingnefndir ættu ávallt að funda í heyranda hljóði nema rökstuddar ástæður séu til annars. Nefndirnar hafa málefni almennings til umræðu. Lokaðir fundir væru þá ógildir fundir.

Í drögum þeim sem hingað til hafa komið fram svo og einnig í leiðbeiningum þeim sem Alþingi lagði Stjórnlagaráði til er ekkert minnst á takmörkun á einni formbirtingu valdsins þ.e. auðvaldsins. Úr þessu þarf að bæta. Auðvaldið er mesta valdið og virkar á almannavaldið, ríkisvaldið og dómsvaldið m.a. fyrir tilstilli eignarhalds á fjölmiðlum. Það þarf að taka þetta til greina og takmarka þetta vald.

Virðingarfyllst,

Methúsalem Þórisson

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.