Glærur frá fyrirlestri Þorvaldar Gylfasonar

21.01.2011 11:43

Þorvaldur Gylfason þingfulltrúi á Stjórnlagaþingi hélt fyrirlestur um stjórnskipunarmál í Hátíðasal Háskóla Íslands í hádeginu í gær og í dag heldur hann samskonar fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri. Þá verður hann með fyrirlestur á Bifröst 25. janúar. Í fyrirlestrinum eru reifuð rök fyrir breytingum á stjórnarskránni, sem sett var til bráðabirgða 1944, og nokkur álitamál um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Einnig eru dregin saman sjónarmið þjóðkjörinna fulltrúa á Stjórnlagaþingi eins og þeir lýstu þeim sjálfir opinberlega fyrir kosninguna til Stjórnlagaþings 27. nóvember 2010. Hér er hægt að nálgast glærur frá fyrirlestri Þorvaldar.

 

Fara í fréttalista