8. ráðsfundur

12.05.2011 13:00

Dagskrá:
  1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar
  2. Skýrsla og tillaga A-nefndar
    Tillaga frá 7. fundi um breytingar á áfangaskjali lögð fram til afgreiðslu (Fyrstu fjórtán ákvæði mannréttindakafla)
  3. Skýrsla og tillögur B-nefndar
    Tillögur um eflingu löggjafarvalds gagnvart framkvæmdarvaldi lagðar fram til kynningar
  4. Skýrsla C-nefndar

Fylgiskjöl:

    Fundargerð

    8. ráðsfundur - haldinn 12. maí 2011, kl. 13.00, í húsnæði Stjórnlagaráðs í Ofanleiti 2, Reykjavík.

    Mættir voru eftirtaldir fulltrúar: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.

    Forföll höfðu boðað Salvör Nordal og Þorkell Helgason.

    Þá sat fundinn Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stjórnlagaráðs.

    Fundurinn var opinn fyrir gesti og sýndur í beinni útsendingu á vefnum stjornlagarad.is.

    Til fundarins var boðað af hálfu stjórnar með tölvupósti miðvikudaginn 11. maí 2011 og dagskrá í samræmi við fundarboð.

    1. Setning fundar

    Varaformaður Stjórnlagaráðs, Ari Teitsson, setti fundinn og stýrði honum.

    2. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar

    Fundargerð 7. ráðsfundar, 5. maí, var samþykkt án athugasemda og verður birt á vef Stjórnlagaráðs.

    3. Skýrsla A-nefndar

    Silja Bára Ómarsdóttir, formaður verkefnanefndar A, gerði grein fyrir störfum nefndarinnar hingað til og skýrði þá tillögu nefndarinnar sem fyrir fundinum liggur.

    Tillaga nefndarinnar um breytingar á áfangaskjali var lögð fram til afgreiðslu, sjá fylgiskjal með fundargerð. Tillagan fjallar um fyrstu greinar í mannréttindakafla og var kynnt á 7. ráðsfundi. Formaður nefndarinnar fór yfir þær athugasemdir sem fram hefðu komið og breytingar sem nefndin hafði gert á skjalinu síðan þá.

    Fundarstjóri gaf orðið laust um starf og tillögu A-nefndar og eftirtaldir tóku til máls: Vilhjálmur Þorsteinsson, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Gísli Tryggvason, Pawel Bartoszek, Illugi Jökulsson, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Örn Bárður Jónsson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pétur Gunnlaugsson, Dögg Harðardóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Lýður Árnason, Pawel Bartoszek, Erlingur Sigurðarson, Dögg Harðardóttir, Arnfríður Guðmundsdóttir, Lýður Árnason, Pétur Gunnlaugsson, Freyja Haraldsdóttir, Katrín Fjeldsted, Ómar Þorfinnur Ragnarsson og Þórhildur Þorleifsdóttir.

    Silja Bára Ómarsdóttir vék af fundi, svo sem hún hafði boðað áður en fundur hófst.

    Örn Bárður Jónsson, varaformaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum. Þær munu koma til athugunar við áframhaldandi vinnu.

    Tillagan tekin til afgreiðslu og greidd um það atkvæði hvort hún færi svo inn í áfangaskjal.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk:
    Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pétur Gunnlaugsson, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Enginn
    Sátu hjá: Pawel Bartoszek
    Fjarverandi: Andrés Magnússon, Salvör Nordal, Þorkell Helgason.

    Tillagan var því samþykkt inn í áfangaskjal, með 21 atkvæði. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Lögð var fram ein breytingartillaga við tillögu A-nefndar og var henni vísað til nefndarinnar. Flutningsmaður var Vilhjálmur Þorsteinsson.

    Stutt fundarhlé.

    4. Skýrsla og tillögur B-nefndar

    Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B, flutti yfirlit yfir störf nefndarinnar og gerði grein fyrir tillögu nefndarinnar sem miðar að því að efla löggjafarvald gagnvart framkvæmdarvaldi.

    Tillagan var lögð fram til kynningar, sjá fylgiskjal með fundargerð.

    Að lokinni framsögu formanns nefndarinnar gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Eiríkur Bergmann Einarsson, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Lýður Árnason, Dögg Harðardóttir, Íris Lind Sæmundsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Þorvaldur Gylfason, Katrín Oddsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Gísli Tryggvason, Pawel Bartoszek, Vilhjálmur Þorsteinsson, Erlingur Sigurðarson, Katrín Fjeldsted.

    Katrín Fjeldsted, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum. Þær munu koma til athugunar við áframhaldandi vinnu.

    5. Skýrsla C-nefndar

    Pawel Bartoszek, formaður verkefnanefndar C, flutti yfirlit yfir störf og verkefni nefndarinnar.

    Fundarstjóri gaf orðið laust um skýrslu og störf C-nefndar og eftirtaldir tóku til máls: Gísli Tryggvason og Dögg Harðardóttir.

    Lögð var fram ein breytingartillaga við tillögur C-nefndar um dómstóla og Lögréttu, sjá fundargerð 7. ráðsfundar, og var henni vísað til nefndarinnar. Flutningsmaður var Gísli Tryggvason.

    6. Breytingartillögum vísað til nefnda

    Fundarstjóri fór yfir þær tvær breytingartillögur sem fram komu á fundinum og nánar eru tilgreindar undir viðeigandi dagskrárlið framar í fundargerð. Breytingartillögum þessum var vísað til viðkomandi nefndar.

    7. Næsti ráðsfundur

    Fundarstjóri gerði grein fyrir því að næsti fundur Stjórnlagaráðs verði haldinn fimmtudaginn 19. maí, kl. 13.00. Dagskrá verði send út síðar.

    Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.47.

    Fundargerð ritaði Sif Guðjónsdóttir