14. ráðsfundur

24.06.2011 09:30

Dagskrá:
  1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar
  2. Skýrsla og tillögur A-nefndar
    - Mannréttindi, tillögur um breytingar á annars vegar tilteknum áður samþykktum greinum og hins vegar tilteknum kynntum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal. Einnig lagðar fram til kynningar tillögur um nýjan texta í sama kafla.
  3. Skýrsla og tillögur B-nefndar
    - Staðfesting laga/málskotsréttur, vald forseta, forstöðumenn sjálfstæðra stofnana. Valkostir I og II. Tillögur um nýjan texta í áfangaskjal lagðar fram til kynningar.
    - Stjórnarmyndun, setutími ráðherra, þingforseti, þingnefndir, meðferð þingmála, náðun og sakaruppgjöf. Tillögur um breytingar á texta í áfangaskjali lagðar fram til afgreiðslu.
  4. Skýrsla og tillögur C-nefndar
    - Kosningar til Alþingis og alþingismenn, tillögur sem kynntar voru á 12. ráðsfundi lagðar fram til afgreiðslu.
    - Lýðræðisleg þátttaka almennings, tillögur um breytingar á annars vegar tilteknum áður samþykktum greinum og hins vegar tilteknum kynntum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.

Fylgiskjöl:


    Fundargerð

    14. ráðsfundur - haldinn 24. júní 2011, kl. 9.30, í húsnæði Stjórnlagaráðs í Ofanleiti 2, Reykjavík.

    Mættir voru eftirtaldir fulltrúar: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.

    Þá sat fundinn Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stjórnlagaráðs.

    Forföll hafði boðað: Íris Lind Sæmundsdóttir.

    Fundurinn var opinn fyrir gesti og sýndur í beinni útsendingu á vefnum stjornlagarad.is.

    Til fundarins var boðað af hálfu stjórnar með tölvupósti fimmtudaginn 23. júní 2011 og dagskrá var í samræmi við fundarboð.

    Formaður Stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, setti fundinn og stýrði honum.

    1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar

    Fundargerð 13. ráðsfundar, 16. júní, var samþykkt án athugasemda og verður birt á heimasíðu Stjórnlagaráðs.

    2. Skýrsla og tillögur A-nefndar

    2.1 Mannréttindi, tillögur um breytingar á annars vegar tilteknum áður samþykktum greinum og hins vegar tilteknum kynntum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal. Einnig lagðar fram til kynningar tillögur um nýjan texta í sama kafla.

    Tillögurnar varða 28 ákvæði (nr. 1-27 og 32) í þeim kafla áfangaskjals sem ber yfirskriftina „Mannréttindi", sjá fylgiskjal með fundargerð þar sem tilgreint er hvað er lagt fram til afgreiðslu og hvað er til kynningar.

    Silja Bára Ómarsdóttir, formaður verkefnanefndar A, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Ari Teitsson, Þorkell Helgason, Arnfríður Guðmundsdóttir, Erlingur Sigurðarson, Andrés Magnússon, Pawel Bartoszek, fundarstjóri lokaði mælendaskrá þegar Pawel lauk máli sínu.

    Fundarhlé.

    Að loknu hléi var fundi haldið áfram og til máls tóku eftirtaldir fulltrúar: Katrín Oddsdóttir, Freyja Haraldsdóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Katrín Fjeldsted, Gísli Tryggvason, Dögg Harðardóttir og Þorvaldur Gylfason.

    Silja Bára Ómarsdóttir, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Tillögur A-nefndar voru teknar til afgreiðslu, að undanskildum ákvæðum 3. og 12. gr. sem einungis voru lagðar fram til kynningar og því ekki greidd atkvæði um þau.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Andrés Magnússon, Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Illugi Jökulsson, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Enginn.
    Sátu hjá: Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Pawel Bartoszek,
    Fjarverandi: Guðmundur Gunnarsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Lýður Árnason.

    Tillögurnar voru því samþykktar inn í áfangaskjal, með 19 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Fram kom ein breytingartillaga, nánar tiltekið þessi:

    • Breytingartillaga við ákvæði 5, 11 og 12 í tillögu A-nefndar um mannréttindi. Flutningsmaður: Katrín Fjeldsted.

    Breytingartillögum þessum var vísað til A-nefndar, sjá bókun undir lið 5 hér á eftir.

    Fundarhlé.

    Að loknu fundarhléi tók Andrés Ingi Jónsson við ritun fundargerðar.

    3. Skýrsla og tillögur B-nefndar

    3.1 Staðfesting laga/málskotsréttur, vald forseta, forstöðumenn sjálfstæðra stofnana. Valkostir I og II. Tillögur um nýjan texta í áfangaskjal lagðar fram til kynningar.

    Tillögurnar varða málskotsrétt forseta (nr. 14 í þeim kafla áfangaskjalsins sem ber yfirskriftina „Störf Alþingis"), brottfall þriggja ákvæða um vald forseta (13., 18. og 19. gr. í núgildandi stjórnarskrá) og eitt ákvæði (nr. 5) í þeim kafla áfangaskjals sem ber yfirskriftina „Stjórnsýsla og eftirlit", sjá fylgiskjal með fundargerð. Skjalið var lagt fram til kynningar.

    Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Vilhjálmur Þorsteinsson, varaformaður B-nefndar, Pétur Gunnlaugsson, Pawel Bartoszek, Andrés Magnússon, Gísli Tryggvason, Dögg Harðardóttir, Katrín Oddsdóttir, Þorvaldur Gylfason, Silja Bára Ómarsdóttir, Lýður Árnason, Erlingur Sigurðarson, Eiríkur Bergmann Einarsson, Örn Bárður Jónsson og Þorkell Helgason.

    Katrín Fjeldsted, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Fram komu tvær breytingartillögur, nánar tiltekið þessar:

    • Breytingartillaga við ákvæði 14 í tillögu B-nefndar um störf Alþingis. Flutningsmaður: Dögg Harðardóttir.
    • Breytingartillaga við ákvæði 14 í tillögu B-nefndar um störf Alþingis (staðfesting laga/málskotsréttur).

    Flutningsmenn: Gísli Tryggvason, Pétur Gunnlaugsson og Þorvaldur Gylfason.

    Breytingartillögum þessum var vísað til B-nefndar, sjá bókun undir lið 5 hér á eftir.

    3.2 Stjórnarmyndun, setutími ráðherra, þingforseti, þingnefndir, meðferð þingmála, náðun og sakaruppgjöf.

    Tillögur um breytingar á texta í áfangaskjali lagðar fram til afgreiðslu.

    Tillögurnar varða sex ákvæði í þremur köflum áfangaskjals og voru lagðar fram til afgreiðslu, sjá fylgiskjal með fundargerð. Nánar tiltekið var um að ræða tvö ákvæði (nr. 3-4) til afgreiðslu í þeim kafla áfangaskjals sem ber yfirskriftina „Ráðherrar og ríkisstjórn", þrjú ákvæði (nr. 7, 9 og 12) í kaflanum „Störf Alþingis" og eitt ákvæði í kaflanum „Forseti Íslands" (nr. 9).

    Katrín Fjeldsted, formaður verkefnanefndar B, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Vilhjálmur Þorsteinsson, varaformaður nefndarinnar, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Gísli Tryggvason, Katrín Oddsdóttir, Þorvaldur Gylfason og Lýður Árnason.

    Fundarhlé.

    Umræður héldu áfram að loknu fundarhléi og eftirtaldir tóku til máls: Andrés Magnússon, Eiríkur Bergmann Einarsson, Þórhildur Þorleifsdóttir og Erlingur Sigurðarson.

    Katrín Fjeldsted, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Tillögur B-nefndar voru teknar til afgreiðslu. Þórhildur Þorleifsdóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Ari Teitsson, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Illugi Jökulsson, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Þórhildur Þorleifsdóttir.
    Sátu hjá: Andrés Magnússon, Erlingur Sigurðarson, Lýður Árnason.
    Fjarverandi: Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Gunnarsson og Íris Lind Sæmundsdóttir.

    Tillögurnar voru því samþykktar inn í áfangaskjal, með 17 atkvæðum gegn einu. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Fram kom ein breytingartillaga, nánar tiltekið þessi:

    • Breytingartillaga við ákvæði 3 í tillögu B-nefndar um stjórnarmyndun. Flutningsmenn: Ómar Þorfinnur Ragnarsson og Þorvaldur Gylfason.

    Breytingartillögum þessum var vísað til B-nefndar, sjá bókun undir lið 5 hér á eftir.

    Fundi var frestað kl. 15.48 og verður haldið áfram mánudaginn 27. júní 2011, kl. 14.00.

    _______________________________________________

    Fundi var fram haldið mánudaginn 27. júní 2011, kl. 14.00.

    Mættir voru eftirtaldir fulltrúar: Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.

    Þá sat fundinn Þorsteinn Fr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stjórnlagaráðs.

    Forföll höfðu boðað: Andrés Magnússon og Íris Lind Sæmundsdóttir.

    Fundurinn var opinn fyrir gesti og sýndur í beinni útsendingu á vefnum stjornlagarad.is.

    Formaður Stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, setti fundinn og stýrði honum.

    4. Skýrsla og tillögur C-nefndar

    4.1 Kosningar til Alþingis og alþingismenn, tillögur sem kynntar voru á 12. ráðsfundi lagðar fram til afgreiðslu.

    Tillögurnar varða fimm ákvæði (nr. 1-5) í kaflanum „Kosningar til Alþingis og alþingismenn", sjá fylgiskjal með fundargerð, og voru lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.

    Við upphaf fundar mánudaginn 27. júní var búið að dreifa nýju skjali til frekari skýringar á þeirri tillögu sem fyrir fundinum lá og fylgdi fundarboði. Nánar tiltekið var þar um að ræða drög að inngangi að greinargerð.

    Pawel Bartoszek, formaður verkefnanefndar C, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu formanns gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Katrín Oddsdóttir, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Silja Bára Ómarsdóttir, Ari Teitsson, Gísli Tryggvason, Pawel Bartoszek, Eiríkur Bergmann Einarsson, fundarstjóri lokaði mælendaskrá, Guðmundur Gunnarsson, Lýður Árnason, Katrín Oddsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorvaldur Gylfason og Þorkell Helgason.

    Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Tillögur C-nefndar voru teknar til afgreiðslu.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Ari Teitsson, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Dögg Harðardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Gísli Tryggvason, Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Katrín Fjeldsted, Katrín Oddsdóttir, Lýður Árnason, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Pétur Gunnlaugsson, Salvör Nordal, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir, Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Enginn.
    Sátu hjá: Arnfríður Guðmundsdóttir, Erlingur Sigurðarson, Freyja Haraldsdóttir, Silja Bára Ómarsdóttir.
    Fjarverandi: Andrés Magnússon, Íris Lind Sæmundsdóttir.

    Tillögurnar voru því samþykktar inn í áfangaskjal, með 19 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Fram kom ein breytingartillaga, nánar tiltekið þessi:

    • Breytingartillaga við ákvæði 1 í tillögu C-nefndar um kosningar til Alþingis og alþingismenn. Flutningsmaður: Lýður Árnason.

    Breytingartillögu þessari var vísað til C-nefndar, sjá bókun undir lið 5 hér á eftir.

    Fundarhlé.

    4.2 Lýðræðisleg þátttaka almennings, tillögur um breytingar á annars vegar tilteknum áður samþykktum greinum og hins vegar tilteknum kynntum greinum lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.

    Tillögurnar varða fjögur ákvæði (nr. 1-4) í kaflanum „Lýðræðisleg þátttaka almennings", sjá fylgiskjal með fundargerð, og voru lagðar fram til afgreiðslu í áfangaskjal.

    Þorkell Helgason, nefndarmaður í verkefnanefnd C, gerði grein fyrir málinu.

    Að lokinni framsögu gaf fundarstjóri orðið laust og eftirtaldir tóku til máls: Gísli Tryggvason, Pétur Gunnlaugsson, Dögg Harðardóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, fundarstjóri lokaði mælendaskrá, Pawel Bartoszek, Katrín Oddsdóttir, Þorvaldur Gylfason, Erlingur Sigurðarson og Lýður Árnason.

    Þorkell Helgason, nefndarmaður í C-nefnd, fékk orðið um fram komnar athugasemdir og ábendingar frá fulltrúum.

    Gísli Tryggvason fékk orðið og tók til máls. Hann vísaði til breytingartillögu frá 13. ráðsfundi, sem flutt var af fimm ráðsfulltrúum, nánar tiltekið Freyju Haraldsdóttur, Gísla Tryggvasyni, Katrínu Oddsdóttur, Silju Báru Ómarsdóttur og Vilhjálmi Þorsteinssyni. Tillagan varðar ákvæði um reglulegt stjórnlagaþing. Gísli fór fram á að tillagan yrði tekin inn í áfangaskjal sem valkostur, sbr. 14. gr. starfsreglna. Vilhjálmur Þorsteinsson dró sig út úr tillögunni og þar með var skilyrði starfsreglna um fimm ráðsfulltrúa ekki lengur uppfyllt.

    Tillögur C-nefndar voru teknar til afgreiðslu.

    Atkvæði féllu svo:
    Samþykk: Ari Teitsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Freyja Haraldsdóttir, Gísli Tryggvason, Katrín Oddsdóttir, Ómar Þorfinnur Ragnarsson, Pawel Bartoszek, Salvör Nordal, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þorvaldur Gylfason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson.
    Á móti: Erlingur Sigurðarson, Pétur Gunnlaugsson.
    Sátu hjá: Dögg Harðardóttir, Katrín Fjeldsted, Lýður Árnason.
    Fjarverandi: Guðmundur Gunnarsson, Illugi Jökulsson, Íris Lind Sæmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Andrés Magnússon.

    Tillögurnar voru því samþykktar inn í áfangaskjal, með 15 atkvæðum. Vinnu við áfangaskjal lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einnig samþykktar tillögur.

    Fram komu tvær breytingartillögur, nánar tiltekið þessar:

    • Breytingartillaga við tillögu C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings. Flutningsmaður: Katrín Oddsdóttir.
    • Breytingartillaga við ákvæði 1, 2 og 3 í tillögu C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings. Flutningsmaður: Lýður Árnason.

    Breytingartillögum þessum var vísað til C-nefndar, sjá bókun undir lið 5 hér á eftir.

    5. Næsti ráðsfundur

    Í lok fundar fór fundarstjóri yfir þær breytingartillögur sem fram höfðu komið á fundinum, alls sjö talsins, sbr. bókun undir liðum 2.1, 3.1, 3.2, 4.1 og 4.2 hér að framan.

    Næsti ráðsfundur verður haldinn föstudaginn 1. júlí, kl. 9.30.


    Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.05.


    Fundargerð rituðu Sif Guðjónsdóttir (dagskrárliðir 1, 2, 4 og 5) og Andrés Ingi Jónsson (dagskrárliður 3)